•14/10/2009 • Leave a Comment

Já þetta er aldeilis búið að vera blautur dagur í dag,

Ég var vöknuð eitthvað rúmlega 3 í nótt í látunum í veðrinu… náði að sofna aftur til svona 5-6 og þá var ég glaðvöknuð aftur… fyrsta óveðrið sem skellur á hérna og með þessari svakalegu rigningu.

Ég fór svo mikið að hugsa um heimilislausa fólkið sem er hér útum allt… ég hélt að þetta yrði rosalega erfitt að koma hingað út og sjá allt fólkið en þetta er auðveldara en ég hélt, en á svona dögum og þegar það er mikil rigning og vindur þá hugsa ég til þeirra..  veit ekki hvort ég hef sagt það áður en það eru 300.000 manns heimilislausir á Bay Area svæðinu sem eru jafn margir og ALLIR á Íslandi… freekar sorglegt…

vedrid

Hér eru tvær myndir af veðrinu sem var í nótt og í dag…

_MG_3766

Ekki óalgeng sjón hér úti :(

Daglegt líf

•12/10/2009 • 1 Comment

Baaaah ég er með samviskubit hvað margir kíkja hérna inn á dag og hvað ég er léleg að setja eitthvað hérna inn.

Allavega þá er bara allt æðislegt að frétta, brjálað að gera í skólanum og ég þakka fyrir hvern dag sem ég kem heim úr honum að ég hafi lifað tímann af ;) Neinei kannski ekki svo slæmt en það eru tveir tímar í viku sem ég þakka í alvöru fyrir það. En ég skal rúlla þessu upp með stæl, meirasegja verkefnin í öðrum eru frekar spennandi, á að gera tvær bækur sem ég held að eigi eftir að verða dáldið flottar :)

Annars er sko aldeilis farið að hausta hérna, ég er að frjósa á daginn og fór í dúnvestinu í skólann og út í dag… og eyði öllum dögunum í dúnsokkunum góðu :) Það er einhver svaka stormviðvörun í gangi, rest af einhverjum fellibyl sem varð 5 manns að bana er að koma upp að ströndinni í fyrramálið, spurning samt hvort þetta sé eins slæmt og þeir segja, við Víkingarnir erum öllu vanir :)!

Er að fara taka myndir fyrir ljósmyndatímann á miðvikudaginn og er að spá í að hafa þemað “vatn” þannig ég kannski reyni að fara út með myndavélina og mynda þessi ósköp :)

Svo er ég búin að panta flug heim til Íslands um jólin, Sunnudaginn 20 Desember legg af stað héðan 6:15 frá San Francisco, flýg til Seattle og chilla þar í um 6 tíma og flýg þaðan kl 15:15 og lendi á Íslandi 6:14 um morguninn 21 Desember þannig 24 tíma ferðalag, hef nú flogið þetta þrisvar áður þannig þetta er ekkert að koma á óvart :) Verður bara gaman að koma heim í jólin og gleðina og jólasteikina og malt og appelsín :) rúmar 9 vikur í þetta sem ég veit að á eftir að líða alltof fljótt  :S
Þannig Sara þarf ekki að hafa áhyggjur að fá hjartaáfall í þetta skiptið;) verða engin surprise!

Annars þá koma MidTerms eftir þessa viku, úff þá er einsgott að standa sig :)

Hey ég fór í bíó um helgina á Invention of lying! mæli með að allir sjái hana, hún er æði!! sé hana samt ekki undir væntanlegar myndir á midi.is. en þið reddið því, ég hló ALLA myndina!

Jæja ætla vera duglegri að setja eitthvað hingað inn þó þið sökkið í kommentunum :)

nokkrar photobooth myndir :P
Photo on 2009-10-12 at 10.21 #2

Ég ekkert smá hamingjusöm samt með vestið :)

stud

við hressar síðustu helgi,

Photo on 2009-10-05 at 10.35

ooog ein af mér og Elínu í tíma :)

ómægad lífi mínu er bjargað

•27/09/2009 • Leave a Comment

ÉG VANN!!!
Ég var að fá þetta sent í e-mail, ég sver

Ticket Number:194463-85

This email is to notify you that you have won the Sum of 1,000,000 Euros in an E-mail program.

1.Reference Number:YOT/35/20/61
2.BATCH NUMBER:36/957/GHW
3.Ticket Number:194463-85

Contact the claim officer with your winning references and for more informations.
Dr.Roy Bosman.
Tel:00 31 643 822 725.
Email:drroybosman@gmail.com

Congratulations!
Yours Sincerely,
Mrs.Suzan Rusland.

riiiiiiiiight!

•25/09/2009 • Leave a Comment

Við sátum á Ítölskum stað, drukkum úr Sænskum glösum sem voru merkt Russia í San Francisco! hvað eru mörg lönd í því! ;)

vá nördalegt!

Ættfræði Íslendinga hlítur að vera flókin…. nei:)

•24/09/2009 • 2 Comments

Já spurning að henda inn smá bloggi,
Jæja nú er ég komin vel inní áfangana og byrjuð að læra á fullu… Get nú ekki sagt að það sé BRJÁLAÐ að gera ennþá, en þetta kemur með tímanum :) Erum komin með verkefni sem á að skila fyrir mid terms og það er alveg nóg að gera fyrir það..
Held að uppáhalds áfanginn minn sé ljósmyndaáfanginn, eigum einmitt að taka 140 myndir fyrir næsta tíma af ljósi og birtu og skuggum :) Er komin með þessa fínu vél Canon EOS 350D með fínustu linsu 17-85mm (fyrir ljósm.nördana) :) já fín fín fín :)

Það er rosalega fyndið hvað fólki finnst merkilegt þegar maður segir að maður sé frá Íslandi.. kemur svona *ANDAINNANDKÖF* REALLLYYYYYY. Hittum konu í mollinu sem spjallaði og spurði okkur spjörunum út um forsetann og læti.. :) Og það besta er þegar kennararnir hér fatta hvað “JóhannsDÓTTIR” stendur fyrir…. so you’re Johanns daughter ? Já! hehe og þau skilja ekki að fleiri geta verið Jóhannsdóttir eða Árnadóttir ÁN þess að vera skyldur þér… OG hvernig finnur þú afa þinn og langafa og langömmu og svona ef þau hafa ekki einusinni sama eftirnafn og þú?? hahah þetta er bara fyndið :) Lítið land hah!

Já annars auðvitað allt gott að frétta, sólin skín hér alla daga nema seinnipartarnir og kvöldin eru orðin frekar köld og hvöss… er fegin að hafa Cintamani vestið mitt hér, held að það verði ekki langt þangað til ég grípi í það á köldum haustkvöldum :)
Planið á næstu helgi er afmælispartý hjá Kim vinkonu okkar Elínar og roomie-inum hennar Heiðrúnar, já þá er spurning að lyfta sér smá upp :)

Annars kveeeðja í bili!

Ein MJÖG hress af mér og Heiðrúnu í kulda og vind :P
IMG_6465

09.11.09

•12/09/2009 • 5 Comments

11 September var í gær.

Ég mætti í tíma í skólanum og það fyrsta sem við áttum gera var að taka blað og penna og skrifa:

“8 years ago today, I was…”

uuuuu sjitt… ég mundi EKKKKKERT hvar ég var eða hvað ég var að gera eða neitt, Bandaríkjamenn muna auðvitað eftir þessum degi einsog hann hafi gerst í gær, en vá ég var algjörlega blanko…ég man mjög vel eftir öllu sem var talað um þetta.. en man ekki hvar ég var eða á hvaða degi eða hvað.
En ég man mjög vel eftir Keikó deginum mikla þegar við fengum að fara í féló og horfa á í sjónvarpinu ;) haha! eeen vil nú meina að 11 sept hafi verið aðeins merkilegri dagur og ætti að vera mér ofar í minni :) en svona er þetta :P

Í dag er samt fyrsti sólarlausi dagurinn, í morgun um svona 7-8 leytið vaknaði ég við þvíííílíkar drunur, hjartað mitt fór á fullt og ég hélt bara að það væri verið að fara bomba allt upp. En svo kom þvílíkur glampi og það var grenjandi rigning. Ég hef aldrei heyrt jafn svakalega þrumu á æfi minni.. en það er hætt að rigna samt sem beturfer :)

Pizza Orgasmica – we never fake it

•11/09/2009 • 2 Comments

Já það er sko ýmislegt sem maður sér hér í Ameríkunni,

Við vorum að fá auglýsingu hingað heim frá pizzastað sem heitir Pizza Orgasmica…

Ákvað að opna og skoða ýmislegt “mjöööög” girnilegt ;)

Endless Summer
First kiss
Hula Hula
Doggie Style
Romeo & Juliet
kinki cow
Hot Mama
divorce
Swingers’ shrimp
the virgin
Kama Sutra
Hot potato
Ecstasy
Erotica

svo að öööörfá dæmi séu nefnd. Við fengum með 5 cupons.
Spurning hvort maður pantar hahaha

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.