meiðsli, skóli, frídagar, bíó….
wow gerði mér ekki grein fyrir hvað margir kíkja hér á dag og hvað ég er lélegur bloggari, úbbbbbs
Annars þá fannst mér tilvalið að blogga þar sem ég sit uppí rúmmi með aðra löppina uppá kodda, mér tókst að skrifa sms í morgun og labba niður stiga og halda að stiginn væri búinn þannig ég datt og snéri ökklann og vinstri löppin er algjörlega ónothæf, ótrúlegt hvað ég sé núna hvað ég er háð að hafa báðar lappirnar í lagi!! Þannig ég er búin að taka því semí rólega í dag og bryðja verkjatöflur. Ég sem ætlaði að vera útum allan bæ og taka myndir.
Myndir fyrir ljósmyndaverkefni sem ég er að fara skila á miðvikudaginn, við eigum semsagt að velja lag og búa til geisladiskahulstur, taka 11 myndir og setja í bækling og búa til diskinn og allt. Ég valdi mér “to be free” með Emeliönu Torrini, æðislegt lag. Ég næ nú að klára þetta á morgun, á eftir að taka nokkrar myndir og er alveg með hugmynd þannig ég hoppa á “einari” af stað og redda þessu.
Síðustu vikur hafa verið mjög góðar, ég er búin að vera mjög skipulögð í lærdómnum og læra vel fyrir tímann sem ég auðvitað græði á því að stressa mig ekki upp, en það er nú búið að vera semí rólegt en nú er þetta að byrja, þarf að skrifa tvær bækur fyrir sögu og setja í prentun, skila því í lok annar, held að það sé svona stærsta lokaverkefnið, svo eru það bara process bækur með verkefnum annarinnar og svona og lokapróf.
Það eru 4 vikur í að ég komi heim, það er þorláksmessa eftir akkúrat mánuð og fyrsti í aðventu er á næsta sunnudag. Þessi önn er búin að líða rosalega hratt, hef alltaf haft það sem reglu að við Heiðrún hittumst á miðvikudögum, tökum smá pásu á lærdómnum og mér finnst við alltaf vera hittast, ætli það sé ekki að tíminn fljúgi þegar það er gaman… eða nóg að gera. Svo er ég búin að hafa það sem reglu síðustu vikur að hafa alltaf Laugardaginn fríann, þá hitti ég Brynju Völu. Annaðhvort fer ég yfir til hennar til Richmond eða hún kemur hingað, við bröllum alltaf eitthvað skemmtilegt…. skoðum búðir, skoðuðum skautasvellið á síðustu helgi, kíktum á hús Robbie Williams, fara á “kveikja á jólatré” hátíðir, förum í bíó. Talandi um bíó fór á Twilight á síðustu helgi, úfff ég mæli sko með henni hún er svakalega góð og extra góð fyrir stelpur! :)
En jæja þetta er farið að vera langloka, ég er að fara á miðvikudaginn til Monterey með Söruh og Elínu til að upplifa alvöru Thanksgiving!! jiii hvað ég er spennt enda er meir en mánuður síðan við ákváðum þetta og loksins er komið að þessu. Verður gaman ég verð auðvitað með myndavélina á lofti og dæli inn myndunum þegar ég kem heim!
En jæja spurning að vera duglegri að blogga, var hissa að sjá hvað margir kíkja hérna inn.
kveðja Rut

Það er nú algjör óþarfi að herma alveg svona eftir mér Rut!!
Það er í tísku að liggja með vinstri fótinn upp í loft og láta stjana við sig! :)