fréttir að handan :)
Jæja enn ein lærihelgin í gangi, þetta hlítur nú að fara taka enda þó ég sjái ekki fyrir endann á þessu :S
En ég ætla reyna allt sem ég get að vera EXTRA dugleg að læra í vikunni og eiga allavega laugardaginn frí, ég og Brynja Vala ætlum að gera okkur glaðan dag og fara á Cheescake factory og kannski í nokkrar búðir í tilefni prófloka. Elín og Heiðrún ætla skella sér til Los Angeles!!!, ég vona að þær taki mynd af öllu fræga fólkinu þar :) !! Það er Halloween á næstu helgi, ég er fegin að vera ekki alveg ein, fólk er fyrir löngu byrjað að skreyta húsin sín með köngulóm og vefjum og graskerum og leiðurblökum og ógeði :( er ekki mikið fyrir svona scary dót :)
Svo fer alveg að koma að því að tímamismuninum verður breytt… þá er ég enn lengur á eftir ykkur -8 tímar í staðin fyrir -7.. verð að viðurkenna að mér finnst hann dáldið óþægilegur uppá að tala við fjölskylduna, vini og kærastann en þetta bara fylgir því að búa uppí skýjunum :)
Já, svo fæ ég kannski að upplifa ALVÖRU THANKS GIVING!! Sarah vinkona okkar sem er með okkur í bekk er frá Monterey ( um 3 tíma akstur héðan) og hún er sjúk að bjóða okkur heim til sín þangað og leyfa okkur að upplifa þetta með sér, eina sem ég man eftir að hún taldi upp að það yrði kalkúnn, auðvitað :) þetta er víst ALGJÖR át veisla og þvílík stemming og stuð!! Þannig ef það verður af þessu þá er ég ÞVÍLÍKT spennt :)
Annars já auðvitað allt gott að frétta sólin lætur sjá sig alla daga! Midterms þýða að ég er hálfnuð hér úti :S Blendnar tilfinningar með það en ég er ekkert smá spennt fyrir jólunum, eins og vinir mínir vita er ég aaalgjört jólabarn.. ég bara trúi ekki að þetta ár sé að verða búið. Árið sem ég bjó í 9 mánuði af 12, í Bandaríkjunum!! :D gæti bara ekki verið betra !!!
En jæja ég ætla segja góða nótt, þið eruð eflaust að vakna… :) auðvitað fylgja nokkrar myndir með :P
Svona er alltaf kósý hjá mér þegar ég læri.. kertaljós og svona… eða humm kannski ekki alltaf…


Calligraphy..skrautskrift, þetta eru mjög langdregnir tímar því það tekur
svo langann tíma að teikna “umgjörðina” fyrir hvert verkefni, en endar svo
á því að verða bara nokkuð flott ef maður vandar sig og gerir þetta 100%

oooog auðvitað ein mynd af mér í lokin því ég var að kúra í dúnsokkunum :)

ÉG ELSKA CHEESCAKE FACTORY!!!!!!!!!!!!
Mitt uppáhalds er í appetizers. Það er kjúklingur sem þú vefur inn í salatblöð svo setur þú allskonar nammigott inní eins og baunaspírur, gúrku og gulrætur. Svo fylgja 3 teg af sósum…sweet chili, hnetu og teriaki! Nammi namm…og svo hollt :D Mana þig til að prófa, ef þetta er á matseðlinum þarna í San Fran ;) Og skola þessu svo niður með ljúffengum kokteil!
namm,…..viltu taka eina sneið af ostaköku og súkkulaðiköku með heim fyrir mig! ég fæ vatn í munninn sko!