Prófatörn

Jæja nú er prófatörnin byrjuð og þessi helgi hefur algjörlega farið í lærdóm,

Ég er orðin svakalega stressuð hvað skólinn er orðinn erfiður eeen ég ætla mér að rúlla þessu upp,  ég var farin að finna fyrir svakalegu stressi í síðustu viku og ákvað að búa mér til tveggja vikna plan með post-it miðum og það er strax farið að hjálpa mér, held það sé alveg nauðsynlegt að hafa svona þar sem lærdómurinn æpir á mann og svo er alltaf gaman að taka post-it miðann niður þegar það verkefni er búið :)  nú verður ekki lengur allt gert á síðustu stundu þó að sumir heimlærdómar geti alveg gerst deginum fyrir….

Hér er mynd af listaverkinu mínu og ég er að segja ykkur það að þetta hjálpar,   maður er stressaður að það sé brjálað að gera en svo setur maður þetta upp og deilir þessu niður á dagana þá reddast allt.

4015461035_2c7a9551e0.jpg

Það er semsagt sögupróf á þriðjudaginn. Fyrir framan mig er ég með umþabil 90 myndir og ef ég man rétt þá eru það um 20 myndir sem koma á prófinu og ég á að skrifa hvað er á þeim og frá hvaða tímabili þetta er og svona, og þetta eru myndir sem eru vel fyrir krist og svona, rosa gaman.. Er á fullu að reyna hafa áhuga á þessu en saga hefur aldrei verið mín sterkasta hlið.

Fyrir ljómyndaáfangann eru það 3 myndir sem við eigum að stækka upp í 11×18 inch… eða allt að 6 litlar myndir sem eiga að sýna sögu. Mig langar dáldið að gera þrjár stórar, eiga þrjár stórar geðveikar myndir eftir mig. en þessar þrjár þurfa vera GEGGJAÐAR. Outstanding !!  ég ætla allavega reyna, sjá hvað kennarinn segir annars breyti ég bara yfir í söguþemað…

Já svo er calligraphy próf á fimmtudaginn, hef aðeins minni áhyggjur af því…

Þannig mjög erfið vika framundan og ég vona að hún verði fljót að líða og að ég rústi þessum prófum auðvitað :)

p.s mig langar í jól í dós :P

Advertisement

~ by ruttla on 18/10/2009.

One Response to “Prófatörn”

  1. Ég sá eimmit jól í dós í gær….og hugsaði BARA til þín sko!

    Kannski að ég fari bara út í búð og kaupi mér jól í dós..bara fyrir þig :)

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.