Days go by…

vá þetta var löng nótt í nótt… kl 16 byrjaði ég á verkefni sem lauk kl 5 um nóttina, með smá klúðri og endurtekningum hafðist þetta á endanum, skrautskrift… alveg ágætur áfangi, Kennarinn okkar er um 85 ára og mjög andfúll, en hann skrifar rooosalega vel, allar þessar krullur og glingur sem hann kann að gera.

Fyrir þennan tíma áttum við að kaupa spes rúðustrikað blað fyrir skrautskrift, allskonar “pen holders” og blek og allskonar stærðir af svona “nibbum” framaná til að skrifa skrautskriftina með… í hverjum einasta tíma er kennarinn með “demo” fyrir okkur og frekar pirrandi hann notar okkar dót, og eyðir okkar blöðum og blekum…  byrjar alltaf tímann á “jáá mér vantar blað og blek og nib númer 3 og og og…”

Í dag þá ákvað hann að gera við okkur díl  ” Hvernig væri ef við myndum sleppa  frímínútum og ef ég næ að fara yfir efnið fyrr þá fái þið að fara, en ef ekki þá fái þið að fara á réttum tíma”  uuu já kennari GÓÐUR díll….  haha, en fengum að fara 10 min fyrr.. haha, gleði

Annars er ég ekki að trúa að það sé föstudagur á morgun, tíminn er að líða svo hratt, ég skrifa það örugglega í hverja einustu færslu hjá mér… vá sko…

En í dag er San Francisco earthquake day, kl 10:15 í morgun fór viðvaranarkerfi borgarinnar í gang og allir áttu að leggjast í götuna eða fara undir borð og eitthvað, en þetta var auðvitað bara æfing,  ég tók fullan þátt í þessum degi og lá uppí rúmi, enda fór ég að sofa kl 5 og þá má vera ennþá uppí rúmi kl 10:15  hehe…

En jæja er búin að blaðra nóg…

Advertisement

~ by ruttla on 15/10/2009.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.