Daglegt líf

Baaaah ég er með samviskubit hvað margir kíkja hérna inn á dag og hvað ég er léleg að setja eitthvað hérna inn.

Allavega þá er bara allt æðislegt að frétta, brjálað að gera í skólanum og ég þakka fyrir hvern dag sem ég kem heim úr honum að ég hafi lifað tímann af ;) Neinei kannski ekki svo slæmt en það eru tveir tímar í viku sem ég þakka í alvöru fyrir það. En ég skal rúlla þessu upp með stæl, meirasegja verkefnin í öðrum eru frekar spennandi, á að gera tvær bækur sem ég held að eigi eftir að verða dáldið flottar :)

Annars er sko aldeilis farið að hausta hérna, ég er að frjósa á daginn og fór í dúnvestinu í skólann og út í dag… og eyði öllum dögunum í dúnsokkunum góðu :) Það er einhver svaka stormviðvörun í gangi, rest af einhverjum fellibyl sem varð 5 manns að bana er að koma upp að ströndinni í fyrramálið, spurning samt hvort þetta sé eins slæmt og þeir segja, við Víkingarnir erum öllu vanir :)!

Er að fara taka myndir fyrir ljósmyndatímann á miðvikudaginn og er að spá í að hafa þemað “vatn” þannig ég kannski reyni að fara út með myndavélina og mynda þessi ósköp :)

Svo er ég búin að panta flug heim til Íslands um jólin, Sunnudaginn 20 Desember legg af stað héðan 6:15 frá San Francisco, flýg til Seattle og chilla þar í um 6 tíma og flýg þaðan kl 15:15 og lendi á Íslandi 6:14 um morguninn 21 Desember þannig 24 tíma ferðalag, hef nú flogið þetta þrisvar áður þannig þetta er ekkert að koma á óvart :) Verður bara gaman að koma heim í jólin og gleðina og jólasteikina og malt og appelsín :) rúmar 9 vikur í þetta sem ég veit að á eftir að líða alltof fljótt  :S
Þannig Sara þarf ekki að hafa áhyggjur að fá hjartaáfall í þetta skiptið;) verða engin surprise!

Annars þá koma MidTerms eftir þessa viku, úff þá er einsgott að standa sig :)

Hey ég fór í bíó um helgina á Invention of lying! mæli með að allir sjái hana, hún er æði!! sé hana samt ekki undir væntanlegar myndir á midi.is. en þið reddið því, ég hló ALLA myndina!

Jæja ætla vera duglegri að setja eitthvað hingað inn þó þið sökkið í kommentunum :)

nokkrar photobooth myndir :P
Photo on 2009-10-12 at 10.21 #2

Ég ekkert smá hamingjusöm samt með vestið :)

stud

við hressar síðustu helgi,

Photo on 2009-10-05 at 10.35

ooog ein af mér og Elínu í tíma :)

Advertisement

~ by ruttla on 12/10/2009.

One Response to “Daglegt líf”

  1. hahahha…..það er bara aldrei að vita nema að ég gleymi því bara þegar þú átt að koma! ;)
    hehe…..nei það gerist nú ekki…

    en ef þú biður fallega….þá væri nú kannski alveg möguleiki á að vakna snemma einu sinni fyrir jólin og pikka þig upp í Keflavík :)

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.