Jæja Monterey var aldeilis skemmtilegt, 2 tíma keyrsla þangað varð að 4 tíma keyrslu vegna umferðatafa, en við þrjár skemmtum okkur vel á leiðinni og sungum með tónlist og spjölluðum. Það var gaman að upplifa Thanksgiving, Sarah stóð sig aldeilis vel í eldhúsinu og eldaði þennan snilldar kalkún fyrir okkur með hjálp mömmu sinnar og svo var allskonar góðgæti með einsog kartöflustappa, cranberry sósa, brún sósa.. yams sem eru svona einsog sætar kartöflur, og epla síter með :) Í eftirrétt var síðan AppleCrisp sem er BTW ÓGEÐSLEGA GOTT! og pumpkin pie :) þannig þetta var bara mjög gaman, en samt ekkert mikið öðrvísi en ég bjóst við :)
Laugardagarnir hafa auðvitað haldið sér með Brynju Völu í allskonar skemmtunum, fórum í bíó í gær með Heiðrúnu líka á Christmas Carol í 3D, Vá hvað það er gaman að fara á 3D myndir… ég hrökk nokkru sinnum við því mér fannst fólkið bara vera fara snerta mig, dáldið scary en hrikalega töff!
í dag eru 2 vikur í brottför til Íslands, og 10 skóladagar eftir af skólanum, það verður nóg að gera þessar síðustu tvær vikur þó ég sé á góðri leið með öll lokaverkefnin, þarf bara fínpússa og klára og skella í prentun og bindingu :) Svo er ég að selja Rúmmið mitt og kommóðuna.. farin að huga að því… Ég er komin í svo mikið jólaskap að það er erfitt að einbeita sér að heimalærdómnum ! Þó að það sé ekkert rosalega jólalegt hérna, jújú einhverjar búðir með jólaskraut og jólaljós en það vantar allan snjóinn :) verður svo gaman að koma heim 2 dögum fyrir jól beint til fjölskyldunnar og í jólaölið og smákökurnar og góða matinn :D, Jón Haukur ætlar að koma og sækja mig á flugvöllinn, úff það verður sko gaman að hitta hann aftur :) Ætla síðan að vera á áramótunum á Ísafirði hjá honum og fjölskyldunni hans :) verður æði!
En jæja ætlaði bara rétt að henda inn nokkrum línum fyrir fólkið sem virðist kíkja hingað inn þó ég sé léleg að blogga…
Jóla skóla kveðja
Rut











